Bloggað í RKV
20.11.2007 17:30:31 / magga

hætt

nenni þessu ekki lengur, bara hef ekki tíma til að eyða í einhvern óþarfa....

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 13:17:45 / magga

snjór

 

Vá þvílíkar undirtektir!!! takk allir....

 

allavega er ég rosa sátt í íbúðinni minni orðin rosa fín að mínu mati allavega...þvílíkur munur sem það er að eiga eitt heimili...ekki að búa hálfpartinn hjá kærasta og pínulítið heima hjá sér einsog ég hef gert síðan ég var 16 ára....nú bara með allt á sama stað :D Aldrei verið hamingjusamari!!!!

 

það er farið að snjóa....búúúú, minnir mann bara á prófin..

 

get ekki ákveðið hvort ég á að fara til Brussel eða Ny og Dc í skólaferð...:$ 

 

ein spurning í lokin....Er áframhaldandi hagvöxtur æskilegur??? 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 08:35:24 / magga

MY CRIB!!!!!!!!!!!!!!

ég er officially orðinn íbúðareigandi!!!!! fengum lyklana í gær...verðum að mála á laugardaginn allir velkomnir að koma og kíkja á okkur:)

 

Svava vinkona orðinn sagnfræðingur!!!!! innilega til hamingju með það honey!!!! 

 

íbúar Hnoðrabæ,

MogM 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 10:26:00 / magga

blah

Helgin liðin, var eins róleg og hægt er. Læra og æfingar fyrir utan smá búðarráp. Alltaf jafn gott að vakna snemma á laugardögum og sunnudögum og vera ekki þunnur....

ég komst að því að Maggi er bara helvíti góður kokkur sem er stór plús...hehe

 

Finnst hræðilegt þetta með veiðimanninn sem drukknaði. Hef verið á þessu sama svæði að veiða og þetta er frekar scary svæði sér aldrei í botninn. Maggi átti svo veiði daginn eftir að maðurinn týndist en auðvitað lá öll veiði niðri í soginu meðan á leit stóð.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 15:50:31 / magga

jájájájájá

sumarið var eins og ein vika, alltof fljótt að líða....skólinn er semsagt byrjaður og september að verða hálfnaður....eru allir að ná þessu??

maður ætlar sér alltaf svo endalaust mikið þegar sumarið byrjar en svo kemst maður bara yfir helminginn....til að stikla á stóru yfir það sem ég gerði í sumar :

 var nú eiginlega mest með fjölskyldunni, þá bæði minni og svo tengdó. fór t.d. í tvær veiðiferðir með mömmu, pabba og systkinum og auðvitað maggi með.

flest allar helgar fór mest í að vera útá landi, sæfellsnes nokkrum sinnum, kiðó oft oft, þingvellir oft, úlfljótsvatn, sogið, hveragerði nokkrum sinnum, vík í mýrdal, kirkjubæjarklaustur alveg örugglega að gleyma einhverju.

var nú mismunandi hvað var verið að gera, veiða, gönguferðir, keyra um og skoða.....þannig ég var  að kynnast landinu mínu.

lítið fór fyrir djamminu en fór þó í snilldar afmæli til ingibjargar í júlí. held ég hafi farið 2 í bæinn í sumar...er svo margt annað sniðugt hægt að gera, þó svo að það sé alltaf gaman að hitta vinkonurnar og kjafta. var einmitt afmæli hjá söru j síðasta föst. sem var mjög fínt!! takk fyrir mig!!

en já nóg um sumarið búið farið liðið....það er bara skólinn og vinna framundan, nóg að gera! svo verða komin jól áður en maður veit... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 18:16:08 / magga

sumarið er byrjað

þá er ég komin heim eftir vikudvöl á Mallorca...var alveg yndislegt!!! gerðum þó ekki mikið en málið var afslöppun, borða góðan mat og njóta sín!!

byrjuð að vinna hjá Vís aftrur, í tryggingaþjónustu, líst vel á það.

verð róleg um helgina, ekkert djamm, bara hafa notalegt.

reykingabann gengið í garð...

enn að bíða eftir einkunnum úr prófum...!!:( hvernig geta kennarar ætlat til að við skilum verkefnum á réttum tíma ef þeir gera það ekki sjálfir...þeir hafa 21 dag til að skila...núna er ég búin að bíða í 30 daga eftir einni einkunn....hmmm....

líst vel á þessa nýju ríkisstjórn...sjáum samt hvað þeir standa við...

 ég og sara j. vorum að allir verði til í að hafa day in the spa...einhvern tímann í júlí...væri æði !!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:41:59 / magga

farin til mallorca

 

 

Prófin eru búin!!!!!!!!!

 Fór í Hraunsfjörðinn um helgina og fékk mína fyrstu bleikju á flugustöng!!!!!!

Farin til Mallorca á morgun í viku!!!!!!!!!!!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 14:36:36 / magga

prófos, kosningar og fl. á dagskrá

2 próf búin og eitt eftir þann 10.maí...

 

kosningar um helgina...vil nýja ríkisstjórn og pásu á samgöngubyltinguna og meiri pening í heilbrigðiskerfið.....

 

eruovision...ef Eiki kemst áfram þá verður horft...spennandi helgi semsagt framundan...

 

mallorca eftir tæpar 2 vikur...!!!!!!

 

svo fer næsta vika í andlitslyftingu á líkama og sál eftir prófatörnina...

 

var búin að skrifa lengir færslu en hún datt út...þannig þessi verður styttri sökum pirrings 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 19:26:26 / magga

Farin á gelgjuna aftur...

jæja já....

 

ég er farin aftur á gelgjuna....fór áðan og fékk mér gat í naflann...hehehe...fór með Siggu frænku sem er 15 sem segir kanski allt um það að ég er á gelgjunni..held samt að ég hafi aldrei tekið gelgjuna út almennilega þegar ég var yngri...en hehe..hefur alltaf langað í gat í naflann og þorði loks að láta verða af því...þetta var líka svona dáldið challenge..að gera eitthvað sem ég þori ekki..maður hefur alltaf gott af því..

 

ef ég á að segja eitthvað um páskana þá var ég í viku í bústað í kjós að læra!!! fór smá að veiða og maggi fékk einn regnboga og svo eina lúðu með húðsjúkdóm...jakk...hún var hálshöggvin!!! og svo grafin í mold.

 

næsta mánuðinn verður bara lestur...og æfingar sem er bara stuð!!! er að reyna að vera jákvæð!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 17:25:18 / magga

Ný færsla

loksins loksins eftir fjögurra ára bið er ég að fara til heitu landanna...Jibbý!!! fer til Mallorca í maí eftir prófin í eina viku!!!!! get sko ekki beðið eftir að fá sumarfrí í heila viku!!!!

 

ég fór á Gus Gus útgáfutónleikana á laugardaginnn og þvílík snilld!!! þetta voru einir bestu tónleikar sem ég hef farið á!! stemmingin var engu lík og tónlistin var alveg æði!!

 

nú fer senn að líða að páskum...allar útlendinga-stelpurnar koma heim..hlakka til að sjá þær!!! en það þýðir líka að prófin nálgast...:( hlakka ekki til þess..... en já það verður örugglega mikið fjör í kringum komu þeirra...og sú fyrsta kemur á morgun...Sunna baby


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 16:01:02 / magga

MARS

Þá er mars-mánuðurinn byrjaður og afmælin streyma alveg inn....ætla hér með að óska öllum afmælisbörnum marsins til hamingju....þegar eru nokkrir búnir...Asta, Kata, Sunna, Tanja, Sara P, Magginn minn, Sibba...uuhhh er ég að gleyma einhverjum?? allavega allar sætu og bestu vinkonur mínar til hamingju með daginn!!!!!!!
 
ég er komin með ótrúlega mikla þrá í sumar og sól í heitu landi...enda hef ég ekki farið síðan útskriftarárið mitt í verslo...2003!!! mig langar svo að finna sól og hita í kroppinn minn!!!! sjáum til hvort þetta rætist :)
  
seinustu helgi á afmælisdaginn hans magga fórum við á hjúkku árshátíð sem var bara alveg mjög nice....hún thelma var svo elskuleg að mála mig fyrir kvöldið...takk takk fyrir það elskan!!
 
á laugardaginn 10.mars er reunion frá grunnskólanum mínum, Réttó, hef ekki séð þessa krakka í mörg ár!! nema náttla magga og vini hans....veit ekki hvort mig hlakkar til..held ég kvíði bara frekar fyrir..... 
 
ég er að íhuga hvort ég eigi að halda uppá afmælið mitt þá 16.mars....en það er alveg óráðið...
 
 
arrigato 

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 18:12:47 / magga

Tanja til USA

Nú styttist í för Tönju aftur til USA en hún fer á föstudaginn og til að hafa smá kveðjuhóf fórum við vinahópurinn út að borða...Við fórum á Caruso, rosa góður  matur þar held að allir hafi verið sáttir..Eitt sem var þó að en það var ein afgreiðslustúlkan....hjá henni var ekki hægt að fá margaritu með pepp/svepp en það var hægt að fá eitthvað annað mínus tómata...sem gerði það sama og beðið var um...anyways...þetta var mjög hallærislegt! Annars var voða notalegt að gera eitthvað svona for a change. Næstu helgi er svo árshátíð hjá stjórnmálafræðinni..hef ekki ákveðið hvort ég fari....:/


Langar bara óska Tönju góðs gengis í USA og vona að við fáum hana fljótlega til Íslands aftur....:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 12:19:07 / magga

Verð að segja eitt!!!!

Gleðilegt árið og það allt....

Varð að segja öllum frá að hann Maggi minn var í 37. sæti af 105 til að komast í gegnum claususinn í hjúkkunni!!!!! Rooossa stolt af honum!!!

Annars hef ég ekkert meira að segja nema ég hlakka til að sjá alla í kvöld!!! ....og mér finnst að það ætti að banna snjó inn í borgum....god weekend
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 14:51:41 / magga

búin!!!!

búin búin búin...!!!


extreme makeover I did!!! aaahhhh....
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 15:52:24 / magga

Góðir hálsar...

Var í prófi númer 2 í dag...alþjóðastjórnmál...og þá er bara eitt eftir sem er á þriðjudaginn....og þá get ég farið að spá í jólunum...

Annars er lítið að frétta þar sem ég fer frammúr á morgnana í náttfötunum læri og fer svo að sofa í náttfötunum. Fer kanski í sturtu þarna inná milli...;) þarf sko að fara í extreme makeover eftir prófin þar sem maður er orðinn fölur, baugóttur, rót og loðinn... er búin að panta mér tíma til að útrýma þessu öllu saman og verð ný manneskja eftir það!! á föstudaginn 22. des þeas og fer úr náttfötunum í djammgallann. Hlakka til að hitta alla fína og sæta og búna með prófin.

Allir eru að koma heim núna fyrir jól sem verður mjög gaman að hitta útlendingana aftur og lifa í menningu og geta rætt málefni sem snúast ekki um anatomíu, lífefnafræði og annað...það er það eina sem ég hef heyrt seinustu dagana...scapula, medulla, buffer og þannig hressandi...


 

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5